Eurovision-ég:
Er í agalega miklu stuði þessa dagana. Er ofsalega ánægð með
íslenska framlagið og veit að Selma á eftir að standa sig vel sem
og þessir þrusuflottu dansarar sem hún tekur með sér! Sænska lagið
finnst mér líka afskaplega flott og hann er með fallegri karlmönnum
í universum gaurinn sem syngur það

Sniðugt að eiga heima i
tveimur löndum og eiga þvi tvöfalt meiri séns á góðu gengi
Skóla-ég:
Er ekki í alveg jafnmiklu stuði... Er að fara í próf á fimmtudaginn
og það gengur bara ekki neitt að lesa. Einhver páskaleti að hrjá
mig. Svo á ég að flytja heillangan fyrirlestur á þriðjudaginn með
hópnum mínum og er ekkert að rifna úr spenningi

Svo fæ eg bara
þriggja daga páskafrí, en þeir þrír dagar verða notaðir vel
Varasalva-ég:
Er í himnaríki þessa dagana eftir að H&M fór að framleiða
varasalva með uppáhaldslyktunum mínum
Tónlistar-ég:
Er loksins búin að komast yfir Fisherman´s woman með Emiliönu
Torrini og þessi diskur er hrein og tær snilld. Tekur við af
Eivöru, sem er búin að halda mér selskap síðan á jólunum

Auk
þess eru Genious loves company með Ray Charles sem og nýji
diskurinn hans Michael Buble alveg að gera sig!
Afmælis-ég:
Er alveg að verða búin að fá ógeð á kökum og brauðréttum. Síðasta
kökusneiðin kláraðist í morgun og það er vel

Langar líka að
þakka fyrir allar kveðjur og gjafir og heimsóknir, ég atti fínansta
afmælisdag!
Bóka-ég:
Er búin að svindla og kaupa mér eina bók á bókamarkaðinum hérna :/
Keypti mér ótrúlega flottan Atlas, sem er eiginlega meira svona
alfræðirit um landafræði og menningu. Kostaði einungis 2000 krónur,
sem er hlægilegt
Bakveika-ég:
Er að bilast. Hef aldrei verið jafnslæm og núna, get ekki setið við
skrifborð og ligg því uppi í rúmi að reyna að glósa. Miður
skemmtilegt, en þá er bara að fara í Pollýönuleik og þakka fyrir að
maður er ekki með alvarlegri sjúkdóma, eins og nýju Ebóluna í
Angóla. *hrollur*
Annars eru ég og hinir persónuleikarnir bara í ágætis fíling. Ég er
að reyna að gleyma því að ég sé með heimþrá og það gengur betur og
betur

Heyri líka oft í fólkinu mínu og fékk meðal annars mjög
skemmtilegar fréttir frá New York í vikunni

Vorið er að koma og
það er afskaplega fallegt veður þessa dagana, ennþá skítakuldi en
sól og stillt. Ætli hjólið verði ekki tekið úr geymslunni í næstu
viku