Ég ELSKA sænskar auglýsingar.
Ég efast um að önnur þjóð (Japanir kannski undantekning) toppi
sænskar auglýsingar. Þær eru vægast sagt skelfilegar, en þeim mun
skemmtilegri
Ég á tvær uppáhaldsauglýsingar akkurat núna. Önnur er um Findus
örbylgjulasagna. Get eiginlega ekki lýst henni, þið verðið bara að
koma í heimsókn og sjá sjálf. Hún er priceless hún er svo ömurleg.
Þið hljótið að vera sammála mér sem búið hérna
Hin er frá sjampó- og sápukompaníinu Barnängen.
Textinn er eitthvað á þessa leið:
"Loksins! Loksins er komið á markaðinn fyrsta
jógúrtið sem
þú getur tekið með þér í sturtuna! Barnängen hefur þróað sturtusápu
úr jógúrtgerlum (eða einhverju álíka), sem verndar og endurnærir
húðina á augabragði!".
Hefur ykkur ekki alltaf langað beint í sturtu með jógúrtfernuna á
morgnana? Uppfrískandi og endurnærandi. Yeah right. Í auglýsingunni
er svo ljoshærð himnalengja að maka sig út í jógúrtsápunni.
Yfir í aðra sálma. Við söfnuðum loks kjarki i gær og töluðum við
kallinn sem leigir eitt herbergið í íbúðinni.
Hann er hérna að meðaltali svona 3 kvöld í viku, oftar en ekki 4
samt. Þegar ég flutti inn sagði leigusalinn við mig: "Micke þrífur
ekki". Eins og það væri hans að ákveða að einn leigjandinn væri
undanskilinn þrifum heimilisins.
Við létum þetta yfir okkur ganga í fyrra, en aðalástæðan var sú að
umgengnin hans var ekki jafnáberandi þá. Hérna eru 2 klósett og í
fyrra notuðu stelpurnar tvær og kallfauskurinn klósettið frammi öll
3. Núna notum við dömurnar hins vegar stærra klósettið og hann
situr einn að hinu.
Þá sést greinilega hversu hrikalega mikill sóði maðurinn er.
Nú er ég nýbúin að segja við félaga mína hérna að ég sé ekki svona
kærasta, sem tuða yfir því að klósettsetan sé uppi eða svoleiðis
smáatriðum en það er svoliítill munur á því að það sé manns eiginn
kærasti, sem ekki kann sig, eða ókunnug sænsk miðaldra mannfýla.
Það er aldrei sturtað niður og aldrei skolað úr vaskinum svo þetta
klósett er alltaf það ógeðslegasta á þriffimmtudögunum.
Nå ja, í gær stöppuðum við niður fótum og sögðum honum að framvegis
yrði hann að sjá um að halda þessu salerni hreinu, við nenntum ekki
að þrífa undan honum skítinn (ekki það að við sjáum ekki um að
þrífa eldhúsið, sturtuna og allt hitt en það er annar handleggur).
Kallinn tók þessu nú bara furðuvel og nú verður spennandi að sjá
hvernig statusinn á náðhúsinu verður næstu vikuna
Þess má svo til gamans geta að sama mannfýla notar tannkremið mitt,
fær "lánaðar" dvd-myndirnar mínar í fleiri vikur og kaupir aldrei
uppþvottalög. Skemmtilegir svona "roomies"
Lærdómsmaraþonið mikla gengur vel, er að klara yfirferð númer tvö á
taugakerfissjúkdómum og innkirtlakvillum. Gengur alveg ljómandi og
heilabúið er óðum að fyllast af nothæfum upplýsingum.
Um helgina er ég alein heima og er enn að velta því fyrir mér hvort
ég eigi að njóta einverunnar ein eða bjóða fólki í slotið.
Svo er það bara Stockholm á miðvikudag. Bið ykkur að krossleggja
fingur og tær með mér og vona að Olof Mellberg (shit hann er svo
myndarlegur), Zlatan, Henke og Ljungberg verði búnir að ná sér,
hvað er fótboltaleikur án fótboltahönkanna?