Bloggandinn hefur yfirgefið mig en ég skal reyna að vera dugleg!
Ég er komin aftur til Skövde og loksins búin að taka upp úr
töskunum og ganga frá eftir ferðalagið. Ótrúlegt hvað það er alltaf
erfitt og leiðinlegt, eins og það tekur stuttan tíma og gerir lífið
auðveldara
Skólinn er byrjaðu á "fullu", með leiðindakúrsi, sem heitir
Stjórnun og skipulag. Það bjargar því sem bjargað verður að
Ingibjörg er komin í bekkinn minn og við getum unnið saman
Veðrið hérna er ótrúlega frábært. Ennþá sumar, yfir 20 gráður dag
eftir dag og heiðskírt. Ég er ekki í neinni æfingu og er að kafna
úr hita um leið og ég hreyfi mig eitthvað utandyra, en það á nú að
fara að kólna í næstu viku.
Fleira er svo sem ekki í fréttum í bili.
Ég skal reyna að láta ekki líða 2 mánuði á milli færslna núna :/