Tjejsnack

Tjejsnack

04.10.2006 20:28:02 / esla

www.nurseesla.net

Jæja, þá megiði uppfæra bókamerkin og linkana!
Er svo sem ennþá að vinna í þessu í rólegheitunum en framvegis mun ég eiga heima hér:

www.nurseesla.net

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 10:10:15 / esla

Mannréttindi.

Halló aftur.

Sko, ég sagði að það skyldu ekki líða 2 mánuðir á milli færslna!

Sit í tölvustofunni í skólanum að bíða eftir þjáningarsystrum mínum í enn einu hópverkefninu.  Þetta er reyndar áhugavert og fjallar um frekar algengt vandamál innan hjúkrunargeirans.

Hvað gerir maður þegar einn af skjólstæðingunum á elliheimilinu neitar að fara í bað?  Er rétt að þvinga hann þegar ólyktin og viðbjóðurinn er orðinn það mikill að það hefur áhrif á alla hina í kring og veldur því að viðkomandi fær ekki eins góða umönnun og hann myndi fá annars? Eða vega mannréttindin alltaf þyngra?  Prófiði að velta þessu aðeins fyrir ykkur - there´s no easy answer! 

Annars er hljóðið bara nokkuð pirrað í mér í dag.  Fór og sótti lyfjareikningsprófið sem ég féll í í vor.  Varð steinhissa þegar ég fékk einkunnina þar sem ég fékk sömu útkomu og allir hinir í kring og ekki féllu þeir.

Þegar ég skoðaði prófið sá ég að ég var felld vegna þess að ég nota ekki sömu aðferðir og kennarinn minn og að hún skilur einfaldlega ekki hvað ég er að fara í útreikningunum mínum.  Það segir mikið um stærðfræðihæfileika hennar!  Ég fór og talaði við kellu en hún neitar að gefa sig og segist vilja að við notum sömu aðferðir og hún - enda séu þær "fullkomlega réttar og auðskiljanlegar".  Ég er því ekki sammála, skil ekkert hvert hún er að fara og botna ekkert í uppsetningunni hennar enda erfitt að ætla að stroka út allar stærðfræðiaðferðirnar, sem mér tókst með herkjum að skrifa á heilabörkinn í MR, og ætla að fara að byrja upp á nýtt.  Ætli það sé samt ekki bara auðveldara að gefa eftir, læra þetta eins og hún vill og massa prófið aftur í október.  Svíar eru ekki þeir auðveldustu við að eiga þegar svona lagað kemur upp á :S

Í dag er hreingerningardagur á Sturegatan 14 og svo ætlar nýjasti sambýlingurinn að elda eitthvað rosalega gott.  Ég ætla að vera rómantísk og kaupa rósir í tilefni þess að allt verður hreint og fínt í kvöld!

Sayonara!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 15:59:45 / esla

Afsakið hlé!

Bloggandinn hefur yfirgefið mig en ég skal reyna að vera dugleg!

Ég er komin aftur til Skövde og loksins búin að taka upp úr töskunum og ganga frá eftir ferðalagið. Ótrúlegt hvað það er alltaf erfitt og leiðinlegt, eins og það tekur stuttan tíma og gerir lífið auðveldara ;)

Skólinn er byrjaðu á "fullu", með leiðindakúrsi, sem heitir Stjórnun og skipulag. Það bjargar því sem bjargað verður að Ingibjörg er komin í bekkinn minn og við getum unnið saman :D

Veðrið hérna er ótrúlega frábært. Ennþá sumar, yfir 20 gráður dag eftir dag og heiðskírt. Ég er ekki í neinni æfingu og er að kafna úr hita um leið og ég hreyfi mig eitthvað utandyra, en það á nú að fara að kólna í næstu viku.

Fleira er svo sem ekki í fréttum í bili.
Ég skal reyna að láta ekki líða 2 mánuði á milli færslna núna :/

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.08.2006 22:55:19 / esla

Sunnudagur til sælu?

Þá er næturvakt númer 2 í röðinni hafin og "einungis" 9 og hálfur tími eftir.  Sáröfunda þær sem eru að fara heim núna 23:30 því ég er illa upplögð og þreytt. 

Amma gamla bauð mér og Mimma í mat í kvöld og gaf okkur lambafillet og með því að borða, en ég held að það hafi ekki verið sniðugur "morgunmatur" þótt góður hafi verið.  Er með endalausa krampa í maganum og langar mest að leggjast upp í rúm og grenja :D  Það þýðir þó lítið að væla, maður verður bara að setja upp sparibrosið og taka því sem að höndum ber. 

Síðasta helgi var bara andskoti skemmtileg!  Herdís og Úlf létu pússa sig saman á föstudeginum og veislan þeirra var sú allra skemmtilegasta, sem ég hef farið í.  Rosalegur matur, flæðandi appelsín og dúndrandi danstónlist hittu vel í mark (þrátt fyrir afskaplega svefnlitla daga á undan) og ég tjúttaði af mér tásurnar.

Linda sambýlingur var svo komin í stutta heimsókn á Frónið og því litaðist restin af helginni og fyrri partur vikunnar af því.  Ákvað að halda lítið teiti á laugardag og eftir spjall og söngkeppni var haldið í bæinn.  Sólon var fyrsti stoppistaður og svo sem ágætisstemming þar þótt sveitt væri.  Tónlistin þó heldur slök og alveg nákvæmlega eins og í fyrrasumar og því ákváðum við að færa okkur yfir á Vegamót.  Linda og Guðni stungu af úr röðinni þar (enda Svíar með 0 úthald í djamminu) og Binna og Sonja kíktu eitthvað annað.  Við Þórey og Kiddi biðum þolinmóð í röðinni meðan öllum VIP-unum og vinum og vandamönnum dyravarðanna var hleypt inn og sáum ekkert eftir biðinni því tónlistin var klikk.  Old School Hip Hop í bland við nýrra stöff og ég brenndi 2000 kaloríum í viðbót.  Við skvísurnar skriðum svo heim í ból um sexleytið og hittum Mimma í eldhúsinu eftir vel heppnað djamm.

Sunnudagurinn fór svo í ferðamannaleik með frekar áhugalitlum túrista.  Kíktum þó á Kerið, Geysi, Gullfoss og þetta venjulega og sníktum afganga úr brúðkaupinu hjá Herdísi og Úlf, sem nutu sveitasælunnar í bústað í Haukadal. 

Þrátt fyrir þreytu í mannskapnum var ákveðið að kíkja á Klambratún og skoða Sigur Rós.  Frábærir tónleikar og gott andrúmsloft og ég held að ég þurfi að fara að hlusta meira á Sigur Rós...

Síðan Linda fór heim á miðvikudag hef ég ekkert gert annað en að vinna.  Nú á ég bara eftir þessa næturvakt, kvöldvakt á morgun og þriðjudag og svo morgunvakt á miðvikudag áður en ég fer í VIKUFRÍ!  Þá skal slappað af... ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 10:34:01 / esla

Prufa

Prufa

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 12:59:55 / esla

Góður júlí maður!

Tvær svakalega góðar helgar að baki og ég skulda tvær ferðasögur!

Helgi 1:
Herdís gæsuð!

Herdís var sótt í BootCampið á mótorhjóli og brunað með hana í 80´s danstíma, sem við Jói stjórnuðum af mikilli hörku. (Svo mikilli hörku að ég tognaði í kjálkanum við öskrin og er ennþá stíf). Tótla reddaði hópnum spandexgöllum, sem settu punktinn yfir i-ið! Ég tók því miður engar myndir, en kannski ég fái lánaðan link á myndir hinna stelpnanna við tækifæri ;)
Eftir dans og sturtu brunaði flokkurinn á Leifsgötuna til Völu og Þóreyjar, át á sig gat og skemmti sér. Það var þó haldið í fyrra fallinu heim í rúm, því dagskráin var rétt að byrja.

Eftir svolítið bras og leiðindaskemmdarverk komumst við loksins út úr bænum á laugardeginum og skunduðum sem leið lá austur fyrir fjall. Stoppuðum á Hvolsvelli og borðuðum nesti, fórum í kýló og boðhlaup og náðum okkur í grasgrænu og hraustlegt útlit.

Næsta stopp var svo á sveitabæ einum undir Eyjafjöllum, þar sem brúðinni tilvonandi var troðið í vinnugallann og hún sett í sveitastörfin. Hetjan stóð sig rosalega vel í mykjumokstri og kúarekstri og henni tókst meira að segja að kreista nokkra mjólkurdropa úr beljunum.

Svo var okkur boðið í vöfflur og meððí til húsfreyjunnar á bænum, skoðuðum eldgamlar myndir, drógum mannakorn og höfðum það notalegt í ekta sveitafíling.

Þar sem seinkum var á ferðinni slepptum við restinni af planinu og drifum okkur í bústað í Grímsnesinu þar sem fólk fór að kostum að vanda. SingStarið var keyrt í botn, bollan flaut í takt við píurnar í pottinum og fólk í góðum gír.
Sunnudagurinn bauð svo upp á bongóblíðu á pallinum, svo við ílengdumst þar og náðum okkur í roða í kinnarnar.

Fabulous weekend með fabulous pæjum! Takk fyrir skemmtunina stelpur!


Helgi 2:
Wtf.is Skövde - Kjarnaskógur.

Þessa helgina var ferðinni heitið norður yfir heiðar.
Ari sótti mig eftir vinnu á föstudaginn og við brunuðum í Borgarnes að sækja fallega fólkið, þau Axel og Ingibjörgu. Axel var í 2 tíma að pakka, svo við ætluðum aldrei að komast af stað, en það hafðist fyrir rest og við lentum í Kjarnaskógi hálftíma eftir miðnætti. Í bílnum á leiðinni flugu arfaslakir brandarar og verður þessi helgi í minnum höfð fyrir lélega brandara, sem urðu samt ótrúlega góðir.

Þegar okkur hafði tekist að tjalda lúxustjaldinu góða í rokinu var gítarinn tekinn upp og Axel setti sig í stellingar. Ari vildi bara spila Creep (enda eina lagið sem hann kann á gítar) og Ingibjörg raddaði fallega allt sem þeir sungu.



Á laugardagsmorgun var liðið heldur glært og því hlaupið á Subway og í dótabúðina, þar sem fjárfest var í frisbíi að bjartsýnna manna sið, þar sem úti voru svona 12 vindstig.



Mývatn var svo næsti áfangastaður, nánar tiltekið Jarðböðin við Mývatn. Ég varð nú fyrir örlitlum vonbrigðum, enda vatnið kalt og staðurinn engan veginn jafnkúl og ég átti von á. Það var samt gott að skola af sér skítinn og fara í góða sturtu!
Eftir smá rifrildi um það hvar ætti að taka bensín og hvort Goðapylsur væru yfir höfuð ætar var haldið aftur á Eyrina og grillið tekið upp. Ég hef sjaldan séð jafnrosalegar aðgerðir og þetta grillerí en pylsurnar og kótiletturnar grilluðust á endanum, eftir að byggður var skjólveggur með vindsængum og kveikt í Kjarnaskógi.



Guðni og Villi bættust svo í hópinn og spilaðir voru skemmtilegir leikir, sem ollu því að vísu að það slokknaði á einum eða tveimur ;)
Eftir að búið var að koma öðrum í háttinn og sækja hinn á klósettið þar sem hann hafði fengið sér kríu í hlýjunni, fórum við að sofa, enda klukkan orðin morgunn.

Sunnudagurinn fór svo bara í tiltekt, tilraun til frisbíkasts, Greifamáltíð og sundsprett í Þelamerkurlaug áður en lagt var í hann heim á leið.



Þessi helgi var engu minni snilld en sú þar á undan og vonandi verða bara allar helgar í sumar í sama styrkleikaflokki!
Ein eða tvær símamyndir í jafnmiklum gæðum í viðbót á myndasíðunni!

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 23:20:12 / esla

Working it...

Well well well.
Komin heim úr útilegu, búin að kaupa mér skó á útsölu, panta mér tíma í klippingu, dansa af mér rassinn og vinna eins og eina vakt.
Ekki slæmt fyrir manneskju með mánudagsveikina á háu stigi ;)

Ferðalag helgarinnar var afar vel heppnað. Það eina sem setti strik í reikninginn (og kannski nokkuð stórt strik...) var helv... veðrið.
Ég er alveg að hætta að nenna að hlæja að þessu og finnast þetta sjarmerandi partur af því að vera Íslendingur. Það er kominn júlí for crying out loud og sumarið að verða búið. Ég hefði betur verið í Skövde í sumar - þá væri ég kannski komin með eins og eins freknu!
Þrátt fyrir skítaveður skemmti ég mér nú samt vel, enda alltaf gaman að klifra í fjörunni og elta öldurnar í góðum félagsskap!
Ég get eiginlega ekki skrifað um þessa ferð fyrr en ég fæ myndirnar, því ég hef grun um að þær segi margar meira en fátækleg orð!! Boltinn John fór t.d. hamförum en sagan bíður betri tíma ;)

Vinnan er alltaf að verða meira og meira spennandi og skemmtileg. Ég er hætt að fara með hnút í maganum og farin að hlakka til að mæta - sem hlýtur að teljast plús ;) Fólkið sem ég er að vinna með er líka allt lúxusútgáfan, sem gerir þetta alveg eðal.

Smáskipun:
Helgina 15.-16. júlí ætla allir með mér og öðrum Skövdebúum, viðhengjum og vinum í stórútilegu.
Staðsetning óljós - fer eftir veðri og vindum...
Er það skilið?
Ég er búin að lofa einhleypum hjúkkum fyrir Össa, svo nú er að finna þær allar og koma þeim á staðinn :D

Þetta blogg var eiginlega meira skyldublogg, sem mér var SKIPAÐ að skrifa, svo ég er hætt þessu í bili og ætla að vinda mér í draumalandið. Þó ekki hans Andra Snæs (eru ekki örugglega allir búnir að lesa hana?) heldur mitt eigið...
Góða nótt!

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 19:26:06 / esla

Greindarvísitölufall.

Púff.

Hafið þið tekið eftir því hvernig ykkur finnst þið klárari innan um sumt fólk en heimskari þegar þið talið við annað?

Ég er búin að komast að því að greindarvísitalan mín lækkar um svona 50 stig og niður í það að vera á barmi alvarlegrar þroskahömlunar þegar ég fer inn á skrifstofu Ríkisskattstjóra á Laugarveginum.

Ballið byrjaði á því í dag að ég þurfti að finna skattkortið mitt, sem var í 2 bútum úti í bæ.  Byrjaði á því að hringja á launadeild Heilsugæslunnar í Reykjavík, en þar fullyrti konan að ég hefði sótt kortið mitt í ágúst, sem er bara alls ekki rétt.  Kellingin stóð fast á sínu og sagði að ég væri bara komin með alzheimer light. 

Well, ég ákvað því að fara bara strax til skattstjóra og sækja nýtt kort og hélt að það yrði ekki mikið mál, kannski svolítið rex og smá lexía um að ég ætti að passa betur upp á kortið mitt.

En nei ó nei.  Stelpan hjá RSK fór að tala á þessu skrýtna máli skattavísindanna, sem ég skil ekki.  "Ertu búin að sækja um skattalega heimilisfesti?"  Ég reyndi að brosa og halda kúlinu en varð alltaf rauðari og rauðari í framan.  "Öh, ég veit það ekki alveg, geturðu kannski útskýrt hvað það þýðir?" - var spurning, sem hún nennti ekki að svara.  Ég fór því út með skattkort með engum uppsöfnuðum persónuafslætti og þau svör að ég yrði bara að fá endurgreiðslu í ágúst á næsta ári.  Shit.

Þetta var ekki alveg það sem ég hafði hugsað mér, svo ég ákvað að kíkja í heimsókn til Diddós, endurskoðandans míns (mér finnst ég hljóma svo ... upper class að hafa endurskoðanda!!).  Hann sagðist hafa sótt um þessa heimilisfesti í skattskýrslunni og ég ætti því að fá skattkort með mínum uppsafnaða persónuafslætti.  Ég renndi þá aftur niður á Laugarveg en var send þaðan með skottið á milli lappanna í LÍN að ná í vottorð.  Þaðan aftur á skrifstofu RSK og svo loks á launadeild LSH.  Þessi prósess tók næstum 3 tíma og ég var orðin ferlega pirruð og þreytt þegar ég loksins komst í vinnunna!!

Plís segiði mér að ykkur finnist þetta líka óskiljanlegt batterí!  Mætti ekki fara að koma þessu á rafrænt form á tækniöld?  Mér finnst það.  Ég er nefnilega ekki jafnvitlaus heima fyrir framan tölvuna ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 22:28:53 / esla

Sunnudagsblogg.

Ég er búin að eiga gæðahelgi, ein heima með litla bróður.
Gamla settið stakk af upp í bústað á föstudaginn og við lillimann ákváðum að taka því bara rólega og leigja okkur mynd.
Fyrir valinu varð The Constant Gardener, með Ralph Fiennes og Rachel Weisz í aðalhlutverkum. Ég vissi ekkert um hvað myndin var þegar ég byrjaði að horfa en sogaðist strax inn í hana og er eiginlega ekki enn hætt að hugsa um hana. Það er allt of langt síðan mynd hefur haft jafnmikil áhrif á mig og látið mig langa til að leggja mitt af mörkum í baráttunni við vondu öflin í heiminum.
Myndin fjallar m.a. um það hvernig stóru lyfjafyrirtækin notfæra sér fátæktina og eymdina í Afríku til að prófa ný lyf við alnæmi og losa sig við útrunnin lyf, sem enginn í hinum "siðmenntaða" vestræna heimi vill sjá. Ég á erfitt með að trúa því að svona mikil grimmd og gróðafíkn búi í nokkrum manni, en því miður er það víst staðreynd.
Vona að sem flestir horfi á þessa mynd og láti hana vekja sig til umhugsunar.
Svo er líka hægt að ganga skrefinu lengra, fara í verslunina Aldo í Kringlunni og kaupa hálsmen til styrktar baráttunni gegn alnæmi. Kostar ekki marga peninga, en getur skipt sköpum.

Laugardeginum eyddum við svo í garðvinnu með ömmu gömlu. Þetta er að verða árviss og skemmtilegur atburður - verslunarleiðangur í Gróðrarstöðina Mörk og Garðheima og svo gróðursetning í kirkjugarðinum og garðinum hennar gömlu á eftir! Ágætis útivera og ég er ekki frá því að mínir antigrænu fingur geti þetta bara alveg, a.m.k. svona einn dag á ári!

Vona að þið eigið góða vinnuviku people.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 14:04:41 / esla

Afmælisbörn dagsins!!

21. júní er greinilega vinsæll afmælisdagur því ég þekki tvær frábærar skvísur, sem fæddust þennan dag fyrir þremur og 26 árum.

Kristrún, ein af ormunum mínum í Stokkhólmi, er þriggja ára í dag og langsætasti aðdáandi Línu Langsokks.  Þau koma bráðum til landsins og þá skal skottan knúsuð.  Hér kemur ein sæt af okkur og Nonna stóra bróður:

Svo á hún Erla Clueless líka afmæli í dag.  Hún er orðin hundgömul, gift og mamma í þokkabót en ber aldurinn vel ;)  Afmæliskveðjur til þín sæta stelpa!


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 10:35:26 / esla

Sunnudagsbíltúrinn

Helgin liðin og þessi varð bara hin fínasta.
Ákvað að nota tækifærið og prófa nýja bílinn almennilega í gær.
Hringdi í skvísurnar og við ákváðum að það væri sniðugt að kíkja einn Reykjanesrúnt, skoða Krýsuvík og Kleifarvatn og rúnta í Keflavík og Sandgerði og svona.

Komumst klakklaust í Krýsuvík og skoðuðum okkur um í rigningu og roki. Furðuðum okkur á fótsporum alveg ofan í sjóðandi vatninu og hlógum að heimskum túristum, sem ekki gátu lesið rétt á skilti og farið eftir leiðbeiningum.
Keyrðum svo af stað og ákváðum að halda bara beint af augum, enda "ekki hægt að villast á Reykjanesinu", eins og einhver okkar sagði ;)

Nú, nú. Fljótlega sáum við 2 skilti. Á öðru stóð Grindavík en Þorlákshöfn á hinu. Þá varð skammhlaup í höfði bílstjórans sem stýrði kagganum eftir Þorlákshafnarafleggjaranum (ég skil ekki alveg ennþá hvað gerðist. Ég VEIT hvar Þorlákshöfn er. Ég veit þar af leiðandi að Þorlákshöfn og Keflavík eru ekki á svipuðum slóðum og að ef skilti vísar á Þorlákshöfn og ég ætla til Keflavíkur er ég á vitlausri leið!!). Við hlógum svo mikið og skemmtum okkur að engin reageraði þegar annað skilti varð á vegi okkar, sem á stóð "Velkomin í Ölfushrepp". Það var ekki fyrr en við vorum komnar í Selvog og hálfa leið að Strandakirkju, sem björgunarsveitarstúlkunni í hópnum datt í hug að líta á kort. Hún fann þessa staði bara alls ekki á Reykjanesinu, en var svo gáfuð að fletta yfir á næstu blaðsíðu og sá þá að við vorum einmitt komnar hálfa leið til Þorlákshafnar, eins og skiltin höfðu réttilega bent okkur á. Er hægt að vera meiri lúðar?!

Ferðin góða um Reykjanesið endaði því í Eden í Hveragerði :D
Góð ferð engu að síður enda toppferðafélagar og alltaf gaman að lenda í óvæntum ævintýrum ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 13:30:03 / esla

Til hamingju með daginn!

Gleðilegan þjóðhátíðardag Íslendingar nær og fjær.
Góður dagur í dag, þrátt fyrir gráan himin, sudda og smá rok. Ef það er sól í hjartanu skiptir veðrið úti engu máli.

Ég byrjaði daginn minn á stofnfundi Framtíðarlandsins - félags um framtíð Íslands - í Austurbæ.
Þetta eru þverpólitísk samtök, sem berjast gegn einhæfri, úreltri atvinnustefnu þar sem höfuðáhersla er lögð á stóriðju með tilheyrandi vatnsaflsvirkjunum og stórfelldri og óafturkræfri eyðileggingu náttúru og lands.
Heimasíða hins nýja félags er www.framtidarlandid.is og hvet ég alla, sem láta sig náttúru landsins okkar varða, að skrá sig til leiks þar.

Næst á dagskránni er að baka kladdköku í tilefni dagsins. Svo er ekki úr vegi að rölta niður í bæ og reyna að sjá glitta í litla bróður, sem ætlar víst að tala við ljósastaura á Laugarveginum í dag. Sem betur fer erum við hin í fjölskyldunni sæmilega normal.

Eigiði góðan dag góða fólk.

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 20:23:00 / esla

Viva Brazil!

Jæja, þá er HM byrjað og það með látum!
Hlakka til að sjá Brassana rústessu, trúi því að í ár gangi allt upp og það verði sambahátíð í Rio eftir mánuð ;)

Ég er bara á fullu í nýju vinnunni, með hana á heilanum allan sólarhringinn og þess vegna ekkert að bögga ykkur með spítalabloggi! Er einmitt á leiðinni á næturvakt og á að vera að leggja mig, en líkaminn er ekki sammála heilanum og það bara slokknar ekki á honum.

Fór í Borgarleikhúsið í gær að sjá 25 tíma, dansleikhúskeppnina, og skemmti mér alveg konunglega. Var nú reyndar engan veginn sammála úrslitunum, en ég hef sennilega bara ekkert vit á þessu ;)
Þetta verður árviss viðburður héðan í frá!

Góða helgi gott fólk, takiði eitt aukaspor á dansgólfinu fyrir mig!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 21:28:44 / esla

Án titils.

Well well.
Þá er verknámið næstum búið, bara 2 vaktir eftir. Ég er búin að vera með námið og spítalalífið á heilanum í 4 vikur, hvert einasta píp sem ég heyri breytist í mónitorhljóðið inni á vakt og á nóttunni skipti ég sjúklingunum út fyrir veika fjölskyldumeðlimi. Núna tekur við smápása og svo byrjar ballið á Barnaspítalanum 1. júní!

Kosningar eftir 3 daga og ég ennþá pínulítið óákveðin. Mér finnst kosningabaráttan hálfhlægileg og ferleg froða sem vellur upp úr frambjóðendum á lokasprettinum. Besta auglýsingin þetta árið hlýtur að vera Björn Ingi að grilla. "Kannski ekki besti grillarinn, en rosagóður í að hlusta" er náttúrulega bara snilldarkosningaslagorð!

Er búin að fara tvisvar í Vesturbæjarlaugina í vikunni og synda. Bringusund reynir á fyndna vöðva í fótunum og ég er með hálfgerða strengi í höndunum, aðallega vöðva á milli litla fingurs og úlnliðs!
Þessar sundferðir hafa svo endað í baðkarinu heima því það er búið að vera svo ógeðslega kalt að ég hef ekki náð kuldanum úr skrokknum nema með sjóðandi baði eftir að heim er komið! Bað eftir bað.
Hver pantaði þetta veður? Ekki það að ég sé að kvarta, fékk senda mynd frá Skagaströnd í dag þar sem fólk veður skaflana upp að hnjám. Er ekki að koma júní á þeirra almanaki?! ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 04:40:24 / esla

Nattskiftet.

Ég held að ég sé ekki gerð fyrir næturvaktir!  Gott starf að velja sér þegar maður á erfitt með að vaka svona, I know ;)  Ég held hins vegar í þá von að ég geti lært að sofa þegar ég þarf að sofa og venjist þessu með tímanum!

Eurovisionnördið í mér hefur legið í dvala í ár.  Ástæðan er, að ég held, sú að flest lögin í ár eru algjör hörmung og ekki þess virði að eyða púðri í.  Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með Silvíu, mér fannst hún ekki syngja þetta vel og atriðið bara einhvern veginn ekki virka.  Ég er á þeirri skoðun að ef maður ætlar að taka þátt í svona keppni, hvort sem það er upp á grínið eða ekki, eigi maður aldrei að fara á svið með atriði sem er minna en tip top. Kannski er ég bara svona skrýtin.  Who knows. 

Carola, drottning av Sverige, komst miklu betur frá sínu en ég hafði reiknað með og ég er ekki frá því að Svíar taki þetta í ár.  Ég er svona hálft í hvoru að vona það, því þá mætir Elsa Euro á keppnina og lætur gamlan draum rætast ;)  Mikið er samt hallærislegt að sjá fullorðnar konur með svo mikið Botox í andlitinu að svipbrigðin týnast.  Það er miklu fallegra að vera bara svolítið hrukkóttur og gamall.

Ekki meira í bili, yfir og út.

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Töffarar
Skemmtilegir bloggarar!